Tix.is

Um viðburðinn

DAGSKRA Á KVÖLDSINS:
19.00 - Húsið opnar
19.30 - Salur opnar
20.00 - Upphitun: Ted Alexandro
20.15 - JIM GAFFIGAN
21.30 - Áætluð lok*
* Dagskrá getur riðlast og er birt með fyrirvara um breytingar. Ekkert hlé er á sýningunni.

Leikarinn, rithöfundurinn, framleiðandinn og fjölskyldufaðirinn Jim Gaffigan er þekktur fyrir hnyttna brandara um föðurhlutverkið, leti, kræsingar og fleira.

Hann hefur hlotið mikið lof fyrir sýningar á borð við Mr. Universe og Jim Gaffigan: Obsessed, en báðar hlutu tilnefningar til Grammy verðlauna. Sjálfsævisaga hans heitir Dad Is Fat og fyrir þremur árum gaf hann út bókina Food: A Love Story. Hann og eiginkona hans, Jeannie Gaffigan, gerðu saman gamanþættina The Jim Gaffigan Show sem hlaut frábærar viðtökur en þættirnir fjalla um það hvernig það var fyrir þau hjónin að ala upp fimm börn í þriggja herbergja íbúð í New York meðan Jim reyndi fyrir sér í uppistandinu.

Nú kemur hann til Íslands með Noble Ape sýninguna og fullt af splunkunýju efni.