Tix.is

Borgarleikhús

Event info

Sýningar hefjast í nóvember.

Einar er alltaf einn. Líka á jólunum. En Einari leiðist aldrei. Hann finnur alltaf upp á einhverju til að gera einveruna áhugaverða. Þegar hann lokast uppi á háalofti heima hjá sér á aðfangadag þarf hann að gera sitt besta til að halda hátíðina heilaga. En Einar er óheppinn og á það til að flækjast í jólaseríum eða lenda i slagsmálum við hangikjöt.  

Þessi sýning var tilnefnd til Grímuverðlauna með Berg Þór Ingólfsson í aðalhlutverki en hann er einnig höfundur og leikstjóri sýningarinnar. Barna- og fjölskyldusýningar Bergs eru margrómaðar. Má þar nefna Mary Poppins, Billy Elliot, Horn á höfði, Hamlet litla og Bláa hnöttinn. Í tvö ár hefur hann leikið þessa sýningu fyrir unga áhorfendur á aðventunni en nú mun hinn fjölhæfi gamanleikari, Björgvin Franz Gíslason, taka að sér hlutverk Einars og hringja inn jólin á gamansaman og hjartnæman hátt fyrir yngstu áhorfendur Borgarleikhússins og fjölskyldur þeirra. 

Listrænir stjórnendur:

Höfundur: Bergur Þór Ingólfsson

Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson

Leikmynd og búningar: Móeiður Helgadóttir

Lýsing og tónlist: Garðar Borgþórsson

 

Leikari: Björgvin Franz Gíslason