Hljómsveitin Muse mun koma fram á Stórtónleikum í Laugardalshöll þann 6. ágúst næstkomandi.
Húsið opnar kl 18:00 og verða veitingasala og upphitunarhljómsveitir á svæðinu.
Í boði eru 300 sérstakir VIP miðar. VIP miðarnir veita aðgang að afgirtu svæði á besta stað í húsinu, beinn útgangur er á veitingasvæði þar sem boðið er uppá grill og fljótandi veitingar og er allt innifalið í miðanum. Að auki fá VIP gestir bílastæði á besta stað við höllina og bestu mögulegu aðstæður.