Elsta acapella sveit Bandaríkjanna og yngsti karlakór Íslands syngjast á.
Í fyrsta sinn eru the Whiffenpoofs, skólakór Yale háskólans í Bandaríkjunum með tónleika á Íslandi. En þess má geta að margir söngmenn Esjunnar hafa lagt stund á nám við Háskóla Íslands.
Fjölbreytt efnisskrá þar sem kórarnir syngja sín vinsælustu lög.
Að tónleikum loknum verður gestum boðið til grillveislu, þar sem boðið verður upp á íslenskar pylsur og bandarískt kók.
Hlökkum til að sjá ykkur