Tix.is

Event info

Eldfjörug ævintýrasýning með skemmtilegri tónlist um óvænta og spennandi hættuför inn í land ævintýranna! Eruð þið tilbúin í ferðalag?

Fjarskaland er staðurinn þar sem persónur gömlu, góðu ævintýranna eiga heima. En þar ríkir neyðarástand. Við mannfólkið erum hætt að lesa ævintýrin og þess vegna eru þau að gleymast og eyðast.

Dóra leggur ásamt Haraldi bróður sínum og foreldrum upp í hetjulega háskaför til Fjarskalands í von um að bjarga íbúum þess.

Fjarskaland er spennandi barnaleikrit sem fær okkur til að rifja upp gömlu, góðu ævintýrin og ekki síður til að hugsa um ýmislegt sem er mikilvægt í samskiptum barna og fullorðinna.

Hvernig verður heimurinn okkar ef ævintýrin hverfa?

Höfundur: Guðjón Davíð Karlsson (Gói)
Leikstjórn: Selma Björnsdóttir
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson
Búningar: María Th. Ólafsdóttir
Tónlist: Vignir Snær Vigfússon

Leikarar: Baldur Trausti Hreinsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Gunnar Jónsson og fleiri

Sýnt á Stóra sviðinu