Mið-Ísland heldur til Akureyrar í Hof með glænýja uppistandssýningu sína þann 30. september næstkomandi. Sýningin var sýnd fyrir fullu húsi á yfir 60 sýningum frá áramótum fram á vor í Þjóðleikhúskjallaranum.
Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Björn Bragi, Dóri DNA og Jóhann Alfreð eru því mættir aftur til leiks með splunkunýtt og brakandi ferskt uppistand!
Sýningar hópsins í Þjóðleikhúsinu eru vinsælustu uppistandssýningar Íslands frá upphafi en seinustu 4 ár hafa meira en 200 sýningar farið fram fyrir fullu húsi og hafa yfir 50.000 áhorfendur mætt og hlegið sig máttlausa, tvo klukkutíma í senn. Sýningin „Lengi Lifi Mið-Ísland“ sló eftirminnilega í veturinn 2014-15, var sýnd yfir 60 sinnum og var lokasýningin kvikmynduð og sýnd á RÚV.
Sýningin er um tvær klukkustundir með hléi og stíga fjórir uppistandarar á svið auk kynnis.
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!
Ummæli gesta frá fyrri sýningum Mið-Íslands:
„Ég kastaðist til af hlátri og skallaði vegg á sýningunni. Ég er massívur aðdáandi.“ – Ágústa Eva Erlendsdóttir, leikkona
„Loksins á Reykjavík alvöru uppistandssenu! Mið-Ísland er fyndnasta sýningin í borginni í mörg ár.“ – Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður
„Ógeðslega fyndið grín beint úr íslenskum samtíma. Þurfti að leggja mig inn á heilsuhælið í Hveragerði í kjölfarið.“ – Brynhildur Pálsdóttir, vöruhönnuður
„Ég hlæ ekki að hverju sem er, en ég hló mjög mikið á þessu uppistandi.“ – Heiða Kristin Helgadóttir, stjórnmálakona
„Það er dásamlegt að setja á sig góðan ilm og fara á sýningu þar sem allir eru meira og minna hlæjandi. Vagga íslenskrar uppistandsmenningar á skilið góðan ilm. Lifi Mið-Ísland!“ – Gunnar á Völlum, sjónvarpsmaður og skemmtikraftur.
„Sökk svo djúpt ofan í grínfenið á síðustu sýningu að Fjölnir Þorgeirsson er enn að reyna að draga mig upp.“ – Hrafn Jónsson, pistlahöfundur
„Loksins eitthvað fyndið eftir að Randver var rekinn!“ – Hjörvar Hafliðason, íþróttafréttamaður og dagskrárstjóri
„Stórkostlegt í alla staði. Maður finnur sálina léttast með hverri hláturroku og horfir á fýlúpúkana í kringum sig bráðna og brosa út í annað.“ – Guðrún Sóley Gestsdóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV