Tix.is

Event info

Í ár bregður Bubbi ekki út af vananum með að halda þorláksmessutónleika víðsvegar um landið en þó er breyting á þar sem hann bætir við tveimur viðkomustöðum þetta árið. Ástæðan er sú að þetta er stórafmælisár hjá Bubba en hann varð sextugur 06.06.16 og var haldin heljarinnar tónlistarveisla í Hörpu i tilefni þess. Fáar hefðir í tónlist hafa orðið jafn lífseigar og þorláksmessutónleikarnir hans Bubba og eru þeir orðnir fastur liður í undirbúningi jólanna hjá fjölda fólks. Margir koma á tónleikana og enn fleiri hlusta á útsendingu Bylgjunnar heimafyrir eða í bílnum þegar verið er að ganga frá síðustu gjöfunum. Eitt er víst að fyrir marga myndi vanta mikið í jólhaldið ef ekki væru þorláksmessutónleikar Bubba Morthens

STAÐSETNINGAR OG DAGSETNINGAR

Þeir staðir sem Bubbi mun heimsækja á Þorláksmessutúrnum þetta árið eru

15. des Edinborgarhúsið Ísafirði
17. des Valaskjálf Egilsstöðum
19. des Bíóhöllin Akranesi
21. des Hof, Hamraborg Akureyri
23. des Harpa Reykjavík

Allar nánari upplýsingar á www.prime.is

Bubbi Morthens