Tix.is

Event info

Croon & Swoon hófst árið 2015 þegar söngvarinn og lagaskáldið, Daníel Hjálmtýsson og gítarleikarinn Benjamín Náttmörður Árnason hittust á köldu nývetrarkvöldi og ákváðu að halda yfir tug tónleika í Reykjavík á aðventunni.

Einblínt var á jólalög af gamla skólanum og leitað á slóðir goðsagna á borð við Frank Sinatra, Dean Martin, Bing Crosby og Nat King Cole. Hittust þeir félagar nær daglega fram að fyrstu tónleikum og héldu opnar æfingar á Gauknum við Tryggvagötu og yljuðu gestum og starfsfólki Gauksins í skammdeginu. Það var svo að eitt síðdegið steig gestur á stokk og tók lagið með þeim félögum. Sá gestur var engin önnur en stórsöngkonan Andrea Gylfadóttir (Todmobile, Grafík, Borgardætur o.fl.) og var þá strax farið að huga að næstu jólum. Hefur Andrea nú gengið til liðs við Daníel og Benjamín ásamt þeim Pétri Sigurðssyni á bassa og Pétri Daníel Péturssyni á trommur.

Hljómsveitin stefnir á tónleika á handfylli staða um borg og bæ en kemur fram á Gauknum við Tryggvagötu fimmtudagskvöldið 22.desember nk. Þar sem verkefnið hófst.

Miðaverð í forsölu er 2000 krónur en 2500 krónur við hurð.

Fylgist með Croon & Swoon á Facebook, njótið og gleðilega hátíð!