Tix.is

Event info

Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn heimsækja Havarí sunnudaginn 23. Júlí. Þar deila sviði einn ástsælasti söngvari landsins ásamt einu af okkar mesta gítarséníi. Það er öruggt að þeir munu kokka upp einhverja unaðslega snilld í sameiningu og kreista fram mörg bros og eflaust nokkur tár. Valdimar og Örn hafa starfað saman í fjölda verkefna en þeir héldu til að mynda óborganlega tónleika í Havarí haustið 2016 ásamt Gosum. Búið ykkur undir dásamlega kvöldstund með þessum eðalmönnum í Havarí.