Tix.is

Event info

Litli sirkus er sirkussýning á vegum Sirkus Íslands sem er sniðin að yngstu kynslóðinni þó foreldrar njóti svo sannarlega líka.

Fólk og hlutir svífa um loft Sirkustjaldsins Jöklu og litríkar fígúrur sýna ótrúlegar listir sínar í ljúfri en fjörugri sýningu í styttri kantinum. Í Litla sirkus eru töfrar sirkusins kynntir á nærgætinn hátt, með styttra athyglissvið yngstu sirkusgestanna í huga.

Miðaverð: 2500 krónur. Börn undir þriggja ára aldri fá ókeypis inn ef þau sitja í fangi foreldra/forráðamanna. Börn yngri en 10 ára verða að vera í fylgd einstaklings sem er 15 ára eða eldri.