Einn ástsælasti söngvari Íslendinga fyrr og síðar, Kristinn Sigmundsson bassi, syngur íslensk og þýsk sönglög. Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur á píanóið.
Stóðum tvö í túni
Kristinn Sigmundsson, bassi
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Ferdinand Rauter Íslensk þjóðlög
(1902-1987) -Almáttugur guð allra stétta (úr Lilju eftir Eystein Ásgrímsson)
-Vera mátt góður
-Stóðum tvö í túni
Sigfús Einarsson Sofnar lóa (Þorsteinn Erlingsson)
(1877-1939) Draumalandið (Guðmundur Magnússon)
Árni Thorsteinsson Þess bera menn sár (J. P. Jacobsen, þýð. Hannes Hafstein)
(1870-1962) Áfram (Hannes Hafstein)
Jón Ásgeirsson Þótt form þín hjúpi graflín (Halldór Laxness)
(f. 1928) Hjá lygnri móðu (Halldór Laxness)
Reynir Axelsson Hringrásir (Kristján Karlsson)
(f. 1944)
Atli Heimir Sveinsson Gamansöngvar
(f. 1938) -Kisa mín
-Erlustef
-Tengdamæðurnar
-Fingramál
-Eignir karls
-Sögugabb
-Eftirmáli ævintýris
HLÉ
Franz Schubert Das Fischermädchen
(1797-1828) Am Meer
Die Stadt
Der Doppelgänger
Ihr Bild
Der Atlas
Richard Strauss Allerseelen (Hermann v. Gilm)
(1864-1949) Ach weh mir unglückhaftem Mann (Felix Dahn)
Wolfgang Amadeus Mozart Madamina, il catalogo è questo (Lorenzo da Ponte)
(1756-1791) (Aría Leporellos úr óperunni Don Giovanni)
Um hátíðina:
Sönghátíð í Hafnarborg er ný hátíð sem verður haldin í fyrsta skipti dagana 1. – 9. júlí 2017. Á meðal flytjenda eru Kristinn Sigmundsson bassi, Dísella Lárusdóttir sópran, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Þóra Einarsdóttir sópran, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Guja Sandholt mezzósópran, píanóleikararnir Anna Guðný Guðmundsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir og gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui. Auk fimm söngtónleika býður Sönghátíð í Hafnarborg upp á master class með Þóru Einarsdóttur sem endar á tónleikum, söngnámskeið fyrir áhugafólk með Guðrúnu Jóhönnu, vikulangt tónlistarnámskeið fyrir börn, sem Þórdís Heiða Kristjánsdóttir og Hildur Guðný Þórhallsdóttir leiða, og jóga fyrir söngvara undir stjórn Guju Sandholt. Stofnandi og listrænn stjórnandi hátíðarinnar er mezzósópransöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.