Tix.is

Event info

Nýtt gamanleikrit um kvíðakast aldarinnar eftir leikhópinn SmartíLab


Baldur stígur á svið og er að hefja fyrirlestur um nýjasta listaverk sitt. Hann finnur að eitthvað er ekki eins og það á að vera… hann frýs. Hann er að fá sitt fyrsta kvíðakast. Hann kíkir inn í heilann sinn og sér þá hvar stjórnstöðin er að bila.

Við kynnumst Baldri – ótta hans, þrálátum hugsunum og leit hans að lausn. Við kynnumst líka öllum hinum Böldrunum, því kvíði býr í okkur öllum. Birtingarmyndir kvíða geta verið ótalmargar og upplifun hvers og eins er sérstök. Fimm leikarar túlka mörg andlit kvíðans, í sjónrænu, gamansömu leikverki.

Í verkinu verður kvíðinn skoðaður frá ýmsum sjónarhornum og kafað í tilfinningar, hugsanir, magaverki, tölvuleiki, geðlyf, svefntruflanir, sjálfsþekkingu, sigra, bata, hugarangur og sálarfrið. Og ofurhetjukvíðamaðurinn kemur að sjálfsögðu við sögu.

Rannsóknir sýna að á hverju ári þjáist um 12% Íslendinga af óeðlilegum eða sjúklegum kvíða. Leikverkið fjallar á glettinn hátt um þetta erfiða málefni, með það að markmiði að vekja fólk til meðvitundar og opna umræðuna um geðheilbrigði á Íslandi enn frekar.


Höfundur: SmartíLab-hópurinn
Leikstjórn: Sara Martí
Framkvæmdastjórn: Martin L. Sörensen
Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson
Leikarar: Agnes Wild, Guðmundur Felixson, Kjartan Darri Kristjánsson, Sigrún Huld Skúladóttir og Bjarni Snæbjörnsson
Hljóðmynd og myndbönd: SmartíLab-hópurinn
Grafísk hönnun: Martin L. Sörensen og Raffaella Brizuela Sigurðardóttir
Ljósmyndir: Ásgeir Ásgeirsson


Umsagnir áhorfenda um verkið:

„Þetta var stórkostleg sýning. Þetta verk er mikilvægt innlegg í baráttuna gegn fordómum.“ 

- Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir


„Ég er eiginlega bara orðlaus, þessi flotti leikhópur setti saman sýningu sem náði að mér fannst alveg að skera beint inn að kjarna þess að upplifa kvíða og setja hana upp á hátt sem fólk skilur og getur tengt við.“ 

- Þórður Páll Jónínuson


„Þetta er holl sýning, fróðleg og skemmtileg og rímar alveg prýðilega við merka starfsemi Tjarnarbíós…“ 

- Silja Aðalsteinsdóttir, TMM.is


„Umgjörðin var mjög flott, einföld en áhrifarík. Yndislegur húmor og fræðandi og góð skilaboð undirliggjandi. Kvíðamaðurinn er algjörlega hetjan mín núna!!“ 

- Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir


„Ég hló og grét. Þannig eru bestu leikhús upplifanirnar.“ 

- Dominique Sigrúnardóttir


„Fyrirlestur um eitthvað fallegt er fyrirtaks fræðslusýning um kvíða sem á erindi við alla.“ 

- Silja Björk Huldudóttir, Morgunblaðið