Jól með Jóhönnu
Söngkonan Jóhanna Guðrún ætlar að halda jólatónleika í Grundarfjarðarkirkju föstudaginn 22. desember klukkan 20.00 og þorláksmessutónleika í Vídalínskirkju laugardaginn 23. desember kl 20:00. Með Jóhönnu verður gítarleikarinn Davíð Sigurgeirsson.
Jóhanna og Davíð ætla að skapa notalega jólastemningu og flytja sín uppáhalds jólalög í glænýjum útsetningum fyrir gítar og söng.
Miðaverð 2990 húsið opnar kl 19:30