TEXTI
Jóga og gongslökun í Björtuloftum - Styrktarviðburður.
Vilt þú vera með okkur á
gullfallegum stað í tilverunni við sólarupprás?
Þann 9. október næstkomandi verður sérstakur styrktarjógatími fyrir Jógahjartað, sem stendur fyrir Hugleiðsludegi unga fólksins þann sama dag 10:30-10:40. Jógatíminn hefst klukkan 8 og stendur til 9:30 um morguninn í Björtuloftum í Hörpu. Gott er að koma amk 15 mínútum fyrr og koma sér fyrir.
Ingibjörg Stefánsdóttir (yogashala.is) mun leiða tímann og er hún
einn reyndasti og mest hjartamiðaði jógakennari sem við eigum hérlendis og er
sönn ánægja að hafa hana með okkur í þessu verkefni.
Í lok tímans mun Arnbjörg
Kristín Konráðsdóttir einn stofnenda Jógahjartans, jógakennari og gongkennari (peaceresound.com) leika á þrjú mismunandi gong
sem fara mjúkum heilunartónum um vitund þína.
Þér gefst einnig tækifæri á að
styrkja okkur með millifærslu á þennan reikning: Kt. 510414-1010 - Reikn.
526-14-403558.
Hugleiðsludagur unga fólksins / Mediation day for youth
Vertu með í 3 mínútna hugleiðslu á
landsvísu fyrir frið í hjarta! Markmið dagsins er að sameina ungt fólk (6-16
ára) í 3 mínútna hugleiðslu í skólum hérlendis og erlendis (við vitum að Kanada
verður með að einhverju leyti eins og í fyrra) og vera með beint streymi frá
Björtuloftum í Hörpu þar sem við hugleiðum fyrir frið í hjarta með um 100
unglingum frá mismunandi skólum á höfuðborgarsvæðinu.
Allir mega vera með hvar sem er kl
10:30! Við erum að vekja athygli á hugleiðslu sem leið til að ma. skapa innri
frið, finna innri náttúrulega gleði, vinna úr tilfinningum, kvíða, streitu og
vanlíðan hjá ungu fólki og gera þau að sterkari einstaklingum. Sama dag er
afmælisdagur John Lennon, þess mikla friðarsinna og
verður kveikt á friðarsúlunni um kvöldið í Viðey.
Hægt
er að vera með á livestream í hugleiðslustundinni og setjum við vefslóðina hér
inn í þennan viðburð þegar nær dregur.