Tix.is

Event info

Norðlenskar konur í tónlist slógu í gegn í Flugsafni Íslands fyrir um ári síðan, en þar flutt þær tónlist tengda stríðsárunum og hugljúfar ballöður undir yfirskriftinni "Um loftin blá".

Í tilefni af Dömulegum dekurdögum, sem fram fara á Akureyri dagana 5.-8. október, ætla tónlistarkonurnar aftur að koma sér í fluggírinn innan um glæsilegar flugvélar safnsins og halda tónleika föstudaginn 6. október.

Fram koma Ásdís Arnardóttir, kontrabassi, Helga Kvam, píanó, Kristjana Arngrímsdóttir, söngur, Lára Sóley Jóhannsdóttir, söngur og fiðla og Þórhildur Örvarsdóttir, söngur.