Symphonia Angelcia býður til
barokk-söngveislu.
Tveir af okkar fremstu söngvurum þau
Elmar Gilbertsson tenór og Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir mezzó-sópran flytja þekktar og minna þekktar barokkperlur. Verkin á tónleikunum eru m.a. eftir Handel, Biber og afmælistónskáldið Monteverdi.
Tónleikarnir
eru fluttir sem ein heild. Söngatriðin eru tvinnuð saman með
hljómsveitarverkum, madrigölum, spuna og fiðlusólóum en það er Laufey
Jensdóttir sem leikur einleik á fiðluna. Leitast er eftir að skapa stemningu sem rímar
við leikhúsupplifun.
Meðlimir Symphonia Angelica eru allir
sérhæfðir í flutningi barokktónlistar og starfa bæði hérlendis og erlendis.
Flytjendur:
Arngeir H. Hauksson, teorba.
Elmar Gilbertsson, tenór.
Halldór Bjarki Arnarson, semball.
Laufey Jensdóttir, fiðla.
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzó-sópran.
Sigurður Halldórsson, selló.
Listrænir stjórnendur tónleikanna eru Sigurður Halldórsson og Sigríður Ósk Krisjánsdóttir.