PEPSI deild karla 2018 – Ársmiðar á heimaleiki Víkings
Ársmiðar verða afhentir við inngang á leikdag.
Heimaleikjakort gildir á alla 11 heimaleiki Víkings í Pepsi deild karla 2018. Korthafar fá
fimm fría leiki. Almennt miðaverð á heimaleiki Víkings verður kr. 2.000 á leik.
Verð kr. 16.500 – Forsöluverð kr. 12.000.
Fjölskyldukort er nýtt kort og gildir á alla 11 heimaleiki Víkings í Pepsi deild karla 2018.
Kortið gildir fyrir 2 fullorðna og allt að 4 börn yngri en 20 ára.
Verð kr. 26.500 – Forsöluverð kr. 20.000.
Silfurmiði er ný tegund ársmiða og gildir á alla heimaleiki Víkings í Pepsi deild karla og
veitir aðgang að kaffiveitingum í Berserkjakjallaranum í hálfleik.
Boðið verður upp á kaffiveitingar og sódavatn.
Verð kr. 25.500 – Forsöluverð kr. 19.000
Gullmiði gildir á alla heimaleiki Víkings í Pepsi deild karla. Gullmiðinn árið 2018 verður á
lægra verði en í fyrra og meira verður innifalið með þessum miða. Nýi Gullmiðinn veitir
bæði aðgang að veitingum fyrir leik og í hálfleik í Berserkjakjallaranum.
Fyrir leik er boðið upp á bjór og Serrano og í hálfleik verður boðið upp á kaffiveitingar og
sódavatn.
Verð kr. 32.000 – Forsöluverð kr. 25.000
VIP miði gildir á alla heimaleiki Víkings í Pepsi deild karla og veitir auk þess aðgang í
Hátíðarsalinn klukkustund fyrir leik og í hálfleik.Fyrir leik er boðið upp á létta rétti og snittur frá Múlakaffi og bjór frá Víking. Í hálfleik er
boðið upp á bjór og kaffi.
Verð kr. 60.000 – Forsöluverð kr. 54.000