Tix.is

Event info

Þessum viðburði hefur verið aflýst

Stefán Karl er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar frá upphafi og hefur skemmt fólki um allan heim seinustu tvo áratugina meðal annars í Latabæ, How the Grinch Stole Christmas: The Musical og með Fulla Vasa Af Grjóti í Þjóðleikhúsinu.

Eftir að hafa þurft að takast á við mest krefjandi verkefni lífs síns til þessa ákvað að bjóða einnig upp á stórskemmtilegt uppistand í Háskólabíói sem hann hefur verið að semja síðustu mánuði.

Sýningin er holskefla af fíflagangi, eftirhermum og sögum af viðburðaríkum ferli og þó efnistökin séu ekki fyrir viðkvæma er óhætt að fullyrða að Stefán Karl kunni að sjá spaugilegar hliðar á grafalvarlegum málum og hlífir þá síst sjálfum sér!