Freyvangsleikhúsið setur nú upp leikritið Þrek og tár, eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks Símonarsonar.
Íupphafi verksins hittum við Davíð, ungan og hæfileikaríkan tónlistarmann, sem snýr aftur heim til Íslands eftir nám erlendis og hann tekur okkur í ferðalag til liðinna tíma. Við göngum inn í minningar hans um Reykjavík við upphaf sjöunda áratugarins og gleðjumst og syrgjum með fjölskyldu hans í lífi og starfi, vinum þeirra og nágrönnum sem hver og einn á sína sögu. Tónlistin er í hávegum höfð í fjölskyldunni og hér hljóma lög eins og Þrek og tár, Heimþrá og Í rökkurró sem voru vinsæl lög á þessum tíma.
Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson og tónlistarstjóri Ingólfur Jóhannsson.
Frumsýning er 23. febrúar og sýningar verða í Freyvangi föstudags- og laugardagskvöld fram á vor.