Tix.is

Harpa

Event info

Sissel Kyrkjebø er ein skærasta söngstjarna Norðurlandanna og hefur selt upp á hverja tónleikana á fætur öðrum, árum saman. Sissel hefur svo sannarlega sungið sig inn í hugi og hjörtu landsmanna, en hún hefur í þrígang komið fram á tónleikum hér á landi og færri komist að en vildu í öll skiptin.

Að þessu sinni slást tónlistarmenn á heimsmælikvarða með í för, sem hafa margir hverjir unnið með mörgum helstu stjörnum heims, þeirra á meðal eru Wayne Hernandez (Tina Turner Madonna, Yusuf Islam) Sam White (Duran Duran, David Gray, Annie Lennox) og Phebe Edwards (Rod Stewart, Adele, Donna Summer.)

Það má því búast við einstaklega vönduðum og skemmtilegum tónleikunum, en að þessu sinni verða flutt kraftmikil og sálarskotin dægurlög ásamt gömlu góðu og klassísku jólalögunum sem lokka fram jólastemninguna ár eftir ár.

Verðsvæðin eru eftirfarandi:

Verðsvæði 1: 14.990 kr (Á mynd: rautt og fjólublátt, merkt X og A)
Verðsvæði 2: 12.990 kr (Á mynd: blátt, merkt B)
Verðsvæði 3: 9.990 kr (Á mynd: grænt, merkt C)
Verðsvæið 4: 7.990 kr (A mynd: gult, merkt D )

Sjá mynd af salnum hér

Sena Live