Tix.is

Þjóðleikhúsið

Event info

Hvað gerir fugl sem er lofthræddur? Getur hann komist yfir óttann? Hvernig fer hann að því? Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki og vináttu.

Hann Örvar er örn sem er svo skelfilega óheppinn að vera lofthræddur. Samt þráir hann heitt að fljúga um loftin blá og með hjálp músarrindilsins vinar síns tekst honum að lokum að yfirvinna ótta sinn.

Einleikurinn Lofthræddi örninn hann Övar naut mikilla vinsælda þegar Þjóðleikhúsið sýndi hann fyrir tveimur áratugum í leikstjórn Peters Engkvists. Leikari í sýningunni var Björn Ingi Hilmarsson, en hann mun nú leikstýra nýrri uppfærslu á verkinu. Björn Ingi hefur um árabil starfað með Peter Engkvist í leikhúsi hans í Svíþjóð, Teater Pero.

Þjóðleikhúsið ferðast um landið!

Leikritið verður frumsýnt úti á landi og sýnt víða um land, auk þess sem sýningar verða í Reykjavík.

Byggt á sögu Lars Klinting
Leikgerð: Stalle Ahrreman og Peter Engkvist
Leikstjórn: Björn Ingi Hilmarsson
Þýðing: Anton Helgi Jónsson Leikari: Oddur Júlíusson