Tix.is

Salurinn

Event info

Miðar á forsölu til 15. ágúst á 4.150,-. Fullt verð: 4.900,-

Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa), kom alsköpuð sem söngkona fram á sjónarsviðið í uppfærslu Baltasar Kormáks á Hárinu árið 1994 í Íslensku óperunni. Í kjölfarið lærði hún leiklist og varð fljótt helsta söngleikjastjarna Borgarleikhússins og hefur þar verið í burðarhlutverkum í Söngvaseiði, Mary Poppins, Chicago og nú síðast Mamma Mia.  Samstarf hennar og Selmu Björnsdóttur var farsælt og nú mætir Hansa með sína stórbrotnu söngrödd í Salinn, Kópavogi, áhorfendum til ánægju og yndisauka.