Tix.is

Salurinn

Event info

Dúó Atlantica er skipað mezzósópransöngkonunni Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og spænska gítarleikaranum og tónskáldinu Francisco Javier Jáuregui. Á þessum tónleikum munu þau fara með fara með áheyrendur í tónlistarferðalag um latnesku Ameríku, þar sem ástríða og tilfinningahiti verða í fyrirrúmi í sönglögum frá Argentínu, Puerto Rico, Kúbu, Mexíkó og Brasilíu.  Guðrún og Javier eru þekkt fyrir að skapa mikla nánd við áhorfendur, innlifun, frumlegt efnisval, heillandi framkomu, tilfinninganæma túlkun og áhugaverðar kynningar, sem færa hlustendur inn í heim hvers lags fyrir sig. Þau komu fyrst fram saman árið 2002 í Guildhall School of Music and Drama í London, þaðan sem þau luku bæði mastersgráðum í tónlist. Síðan þá hafa þau komið reglulega fram í fjölmörgum tónleikasölum og á tónlistarhátíðum víðs vegar í Evrópu, Bandaríkjunum og Afríku. Þau hafa tekið upp þrjá geisladiska: Mitt er þitt – íslensk og spænsk sönglög (12 tónar), English and Scottish Romantic Songs for voice and guitar (EMEC Discos) og Secretos Quiero Descubrir (Abu Records). Upptökur þeirra má einnig heyra á diskunum Inspired by Harpa, Icelandic Folksongs and Other Favorites og Kom skapari.