Tix.is

Salurinn

Event info

Ýkt sorg, ást og drami eru aðalsmerki tangó en þar sem dalirnir eru djúpir eru topparnir ýktari og gleðin glansar. Allir eiga séns á að gleyma sér um stund. Opna hugann fyrir möguleikum og hugsa um orð, atburði og upplifanir frá nýju sjónarhorni. Takturinn ræðst inn í sálartetrið og kannar hvað leynist þar.

Tónlistina flytja:

Svanlaug Jóhannsdóttir - söngur
Agnar Már Magnússon - píanóleikari
Matthías Stefánsson - fiðluleikari
Matti Kallio – harmonikkuleikari
Gunnar Hilmarsson - gítarleikari
Gunnar Hrafnsson – kontrabassaleikari

Sérstakur gestasöngvari er Margrét Pálmadóttir, söngkona, skólastjóri og kórstjórnandi með meiru.

Svanlaug Jóhannsdóttir söngkona féll fyrir argentískri tangó tónlist eftir örnámskeiði á Íslandi og fór hálfu ári síðar í hálft ár til Argentínu til þess að lifa og anda að sér tónlistarstefnunni. Hún lýsir því að syngja tangó “eins og að koma heim”. Hún er nýflutt til Íslands eftir að hafa búið á Spáni í um fimm ára skeið. 

Það voru texar Horacio Ferrer sem fyrst kveiktu áhuga Svanlaugar Jóhannsdóttur á argentískum tangó.  Hann sér aðra hluti í heiminum en við hin. Í textum hans fer fólk til tungslins í bíl sem dregin er áfram af svölum. Hann kennir fólki hvernig á að deyja, að hætti tangó en jafnframt finnur líka mikið til með blómadrengnum sem selur rósir á útiborðum veitingastaða í Buenos Aires.

Piazzolla og Ferrer unnu mikið saman. Tónlist Piazzolla er unnin með innblástri frá argentískum tangó, en þegar maður ferðast til Argentínu kemur í ljós að Argentínumönnum finnst Piazzolla alls ekki hafa skrifað tangó.  Á ákveðinn hátt hjálpar það tónlistinni. Hún er bara sjálfstæð, ein og sjálf og þarf ekki að falla undir allar reglur og hefðir tangósins. 

Sýningin er ekki endilega af þessum heimi.  Draumkennd á þann hátt að eitt kemur ekki endilega í beinu framhaldi af öðru, skrítnar verur birtast, dansað er á milli atriða og ráðist inn í sálartetrið og kannað hvað leynist þar. Hverjar eru þessar ástríður? Hvaðan koma þær? Hvert leiða þær okkur?

Á tónleikunum verða flutt lög Piazzolla og annara tónskálda sem hafa farið út fyrir hið hefbundna tangó form en notað hann sem innblástur.  Einnig verða flutt önur Suður-Amerísk lög og lög sem eru afrakstur samstarfs Svanlaugar með eigin texta við tónskáld búsett á Íslandi.


Hallveig Rúnarsdóttir, óperusöngkona:

“Tangóstjarna er fædd! Svanlaug Jóhannsdóttir söng lög frá Buenos Aires í kvöld þannig að gæsahúð, hlátur og tár blönduðust saman í sæluhrolli. Þegar kemur að tangóinum er hún í ALGJÖRUM sérflokki. Þvílíkur tilfinningahiti, þvílík túlkun, þvílíkt músíkalítet og þvílík rödd! Innilega til lukku elskuleg og takk fyrir frábært spil elsku Agnar Már... troðið upp sem víðast!”

Bryndís Schram, sjónvarpskona:

“Svanlaug, innilegar þakkir fyrir ógleymanlega samveru á tónleikunum í kvöld. Þú hefur töfrandi sviðsframkomu, magnaða rödd og líkama, sem syngur með röddinni.  Vertu nú dugleg að koma þér á framfæri. Mér finnst, að þjóðin megi ekki missa af þér.  Gangi þér allt í haginn - þú hefur allt til að bera.