Tix.is

Salurinn

Event info

Nú gefst skagfirðingum í Reykjavík og öðrum  loksins tækifæri að heyra og sjá tónleikana sem slógu svo rækilega í gegn í vor á Sæluvikunni á Sauðárkróki. Vegna fjölda áskoranna mætum við í borgina  og flytjum ykkur fallegu skagfirsku danslagaperlurnar sem Haukur Þorsteins, Muni, Ninni, Svenni, Geiri, Steini, Gunnar Páll og fleiri gerðu ódauðlegar á Króknum. Söngvararnir Geirmundur Valtýsson, Pétur Pétursson frá Álftagerði, María Ólafsdóttir, Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, Óli Ólafsson,Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson, Magnús Helgason og Sigvaldi Helgi Gunnarsson flytja  okkur dægurlagaperlur m.a eftir Eyþór Stefánsson, Guðrúnu Gísladóttur, Geirmund Valtýsson, Ragnheiði Bjarman, Þorbjörgu Ágústdóttur, Angantýsssystkinin, Jón Björnsson frá Hafsteinsstöðum og marga fleiri. 

Hljómsveitarstjóri, gítarleikari og útsetjari er Þórólfur Stefánsson,  bassann plokkar Jón Rafnson, Daníel Þorsteinsson leikur á píanó og Halldór G. Hauksson leikur á trommur.