Tix.is

Um viðburðinn
Tónleikar Skálmaldar sem áttu að fara fram laugardaginn 28. mars í Hljómahöll frestast til 17. apríl. 

Skálmöld gaf út þriðju hljóðversplötu sína, Með vættum, 31. október síðastliðinn. Platan hefur þegar selst gríðarlega vel og fengið stórkostlega dóma, bæði hér heima sem og erlendis. Strax eftir útgáfu héldu strákarnir utan til tónleikahalds en að því loknu hyggjast þeir fagna meistaraverkinu hér heima með útgáfutónleikum í Hljómahöll þann 17. apríl. Ekkert verður til sparað og óhætt að lofa stórkostlegri upplifun enda mæta Skálmaldar-liðar til leiks þéttari en nokkru sinni fyrr eftir langt tónleikaferðalag.

Tónleikarnir hefjast kl 21:00. Húsið opnar kl. 20:00.

Sérstaklega skal tekið fram að ekkert aldurstakmark er á tónleikana.