Tix.is

Um viðburðinn
Efni: Kua og Teriki eru ástfangin og hyggjast gifta sig innan skamms. Þau hafa komist að því að barn þeirra, Maoki, er veilt fyrir hjarta. Þá hafa sjö manns úr fjölskyldu Teriki fengið krabbamein, þar á meðal faðir hans Maro. Ástæður þessa rekja þau til nálægðarinnar við Moruroa þar sem Frakkar sprengdu alls 193 kjarnorkusprengjur á fyrrgreindu 30 ára tímabili.

Jafnframt er talin hætta á að Moruroa gæti fallið saman og þannig valdið gríðarlegri flóðbylgju sem myndi færa eyjuna þeirra í kaf. Samkvæmt ýmsum sérfræðingum er talið að milli tvö til þrjú tonn af Plútóníum sé að finna undir Moruroa sem ógnar öllu Kyrrahafssvæðinu um margar næstu aldir.