Tix.is

Um viðburðinn

Hinn eini sanni Pétur Jóhann Sigfússon ætlar að skella sér til Kaupmannahafnar með sýninguna sína "Pétur Jóhann óheflaður" laugardagskvöldið 18. apríl.

Það er ekki á hverjum degi sem að þessi fáránlega fyndni og prýðisgóði piltur er með uppistand öllum opið og hvað þá í Köben.

Pétur er eins og alþjóð veit gríðarlega skemmtilegur og eftirsóttur uppistandari. Og þar að auki hefur hann unnið marga og stóra sigra í kvikmyndum og sjónvarpi.

Sýningin PÉTUR JÓHANN ÓHEFLAÐUR er 2 klst uppistandssýning samin af Pétri sjálfum. Síðustu mánuði hefur hann flakkað um Ísland með þetta show og fyllt hvert húsið á fætur öðru. Þetta er sama sýning og Pétur Jóhann var með í Kaupmannahöfn í febrúar í fyrra.

16 ára aldurstakmark er á sýninguna.

ATH - Aðeins 130 miðar í boði.

Húsið opnar kl 20:00. Skynsamlegt er að mæta snemma til að ná góðum sætum.

Taktu kvöldið frá og græjaðu frí í vinnunni fram að jólum. Harðsperrur í maga munu orsaka fjarveru þína.