Tix.is

Um viðburðinn
Eldfjall er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2012. Myndin fjallar um Hannes, 67 ára gamlan mann sem er að komast á eftirlaunaaldur. Hann er karlmaður af gamla skólanum, einangraður frá fjölskyldunni og heimilinu og þarf nú að takast á við nýtt hlutverk í lífinu. Eldfjall er þroskasaga manns sem þarf að takast á við val fortíðarinnar og erfiðleika nútímans til að eiga möguleika á framtíð.

Eldfjall er fyrsta mynd Rúnars Rúnarssonar í fullri lengd, en stuttmyndir hans Síðasti bærinn, Smáfuglar, og Anna hafa fengið yfir 100 alþjóðleg kvikmyndaverðlaun. Síðasti bærinn var tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 2006, ein íslenskra stuttmynda. Eldfjall hefur nú þegar verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim, t.d. í Cannes og Toronto, og er í forvali til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.