Tix.is

Um viðburðinn
Hinn eini sanni Pétur Jóhann Sigfússon ætlar að skella sér suður með sjó með sýninguna sína "Pétur Jóhann óheflaður" föstudagskvöldið 21. nóvember og skemmta í Hljómahöll.

Það er ekki á hverjum degi sem að þessi fáránlega fyndni og prýðisgóði piltur er með uppistand öllum opið og hvað þá í Reykjanesbæ.

Pétur er eins og alþjóð veit gríðarlega skemmtilegur og eftirsóttur uppistandari. Og þar að auki hefur hann unnið marga og stóra sigra í kvikmyndum og sjónvarpi.

Sýningin PÉTUR JÓHANN ÓHEFLAÐUR er tveggja klukkustunda uppistandssýning samin af Pétri sjálfum. Síðustu mánuði hefur hann flakkað um landið með þessa sýningu og fyllt hvert húsið á fætur öðru.

Forsala miða hefst mánudaginn 13. október. Miðaverð er 2.900 í forsölu // 3.900 við hurð en fram til mánudagsins 20. október verða miðarnir á sérstöku forsölutilboði á 2.500 kr.

Húsið opnar kl 20:00. Skynsamlegt er að mæta snemma til að ná góðum sætum.

Taktu kvöldið frá og græjaðu frí í vinnunni fram að jólum. Harðsperrur í maga munu orsaka fjarveru þína. Hljómahöll