Tix.is

Um viðburðinn

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að halda aukatónleika til heiðurs Rúnari Júlíussyni sem hefði orðið 70 ára á þessu ári.

Tónleikarnir verða í Stapa hinn 15. maí 2015 kl. 21:00.

Á tónleikunum verður ferill Hr. Rokks rakinn í máli, myndum og músik undir léttri leiðsögn fjölskyldu Rúnars ásamt einvala liði söngvara og hljóðfæraleikara.

Valdimar Guðmundsson, Stefán Jakobsson, Magni Ásgeirsson og Salka Sól munu flytja öll bestu lög Rúnars ásamt sérvalinni rokksveit undir styrkri stjórn Jóns Ólafssonar.

Rúnar var þekktur fyrir söng og bassaleik með mörgum af þekktustu rokkhljómsveitum Íslandssögunnar en hans er einnig minnst fyrir elju, hvatningu til ungra listamanna, húmor og einstaka ljúfmennsku. Á tónleikunum fáum við að heyra hvaðan lögin koma, nokkrar góðar bransasögur og ekki síst söguna á bak við manninn.

Einstök kvöldskemmtun sem væri ferlega svekkjandi að missa af.