Tix.is

Um viðburðinn

Mengi kynnir:

NEÐANSJÁVARTÓNLEIKAR!!!

Laugardaginn 15. ágúst verða útgáfutónleikar með dj. flugvél og geimskip haldnir á HÚRRA.

Þar kennir ýmissa grasa, en búast má við miklu skrauti, EINSTÖKUM veitingum, fjöri og elektrónískri furðutónlist af allra bestu gerð.

Þetta verður sannkölluð veisla fyrir augu, eyru munn og nef.

Óvænt uppákoma mun koma gestum skemmtilega á óvart og því verður ekki sagt meira frá því að svo stöddu.

Þemað á nýju plötunni sem og tónleikunum eru hafdjúpin og eru gestir beðnir um að hafa það í huga. Það væri gaman að sjá sem flesta taka þátt í þessu þema með einhverjum hætti til að stemningin og upplifunin verði sem mögnuðust á HÚRRA þetta kvöld.

Stikkorð fyrir klæðnað og hugarfar:
-myrkur, sægrænn og djúpblár, kolkrabbar og marglyttur, glans og glimmer, sandur, sæsnákar, sjálflýsandi furðufiskar, Atlantis og portal í aðra heima.

HIP-HOP Hudson hitar upp með nokkrum gömum slögurum. Hann hefur verið lengi að og spilar gamaldags HipHop blandað íshokkímúsík.

RATTOFER spilar svo hrottalega danstónlist fram á rauða nótt!

RUGLAÐ PARTÝFJÖR