Tix.is

Um viðburðinn

„Við hljótum að geta bjargað þessu hræðilega leikriti!“

Fjórir trúðar hafa í kærleika og einlægni tekið að sér það krefjandi verkefni að sviðsetja leikrit Matthíasar Jochumssonar sem var frumsýnt í skemmu á Eyrinni árið 1890 í tilefni af þúsund ára afmæli landnáms í Eyjafirði. Uppsetningin fyrir 125 árum síðan var íburðarmikil og glæsileg en sú uppfærsla er fyrsta og eina uppsetningin á verkinu . Hvers vegna hefur verkið ekki verið sett upp síðan þá? Svarið virðist liggja í augum uppi þegar höfundurinn sjálfur talar um það sem „sáraófullkomið drama“. Verkið er einfaldlega ekki nógu gott. Hvað er þá til ráða? Geta trúðar, sem eru fróðir og forvitnir um allt sem viðkemur Eyjafirði, náð að glæða verkið lífi? Geta trúðar sviðsett „versta“ leikrit Íslandssögunnar?

Helgi magri er 319. sviðsetning Leikfélags Akureyrar. Trúðasýningin er samsköpun leikhópsins sem útfærir alla listræna þætti sýningarinnar sjálfur. Engin sýning er eins, þær eru allar einstakar.

Leikarar og höfundar:
Benedikt Karl Gröndal, Halldóra Malín Pétursdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Kjartan Darri Kristjánsson.

Listrænn stjórnandi
Jón Páll Eyjólfsson

Spunasýning byggð á verki Matthíasar Jochumssonar – Helgi hinn magri

Forsýnt föstudaginn 8. apríl 2016 í Samkomuhúsinu

Frumsýning föstudaginn 2. september 2016 í Samkomuhúsinu