Tix.is

Um viðburðinn

Högni Egilsson hefur komið víða við á fjölbreyttum tónlistarferli sínum og leggur nú leið sína í Hljómahöllina, Reykjanesbæ. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalagi hans um landið í september og október og mun hann leika efni úr ýmsum áttum enda úr nógu að taka. Högni hefur samið tónlist með hljómsveitum sínum Hjaltalín og GusGus auk sólóverkefnisins HE. Þá hefur hann samið fjöldamörg tónverk fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir. Öll verkefnin eru undir og mega tónleikagestir því búast við einstakri tónlistarveislu.

Tónleikar Högna á þessu ferðalagi munu fara fram á minni tónleikastöðum um land allt í því augnamiði að skapa nánd og eftirminnilega stemmingu meðal tónleikagesta. Það er auðséð að færri komast að en vilja og mælumst við til þess að fólk tryggi sér miða og mæti snemma.

Tónleikar Högna hefjast kl. 21:00 og húsið opnar 20:00. Miðaverð í forsölu á tónleikana er aðeins 2.000 kr. Miðaverð við hurð er 2.500 kr.