Tix.is

Um viðburðinn

Aukatónleikar um Villa Vill

Vegna mikillar eftirspurnar og þar sem færri komust að en vildu á tónleika Söngvaskálda á Suðurnesjum um Vilhjálm Vilhjálmsson frá Merkinesi verða tónleikarnir endurteknir í Bergi í Hljómahöll fimmtudaginn 12. maí kl. 20:00

Aðeins 100 miðar eru í boði, svo ljóst er að áhugasamir ættu að hafa hraðar hendur.

Tónleikaröðin Söngvaskáld á Suðurnesjum fékk fljúgandi start en fjallað var um þrenn söngvaskáld á jafnmörgum tónleikum í febrúar, mars og apríl, Vilhjálm Vilhjálmsson, Sigvalda Kaldalóns og Jóhann Helgason. Flytjendur eru Dagný Gísladóttir, Elmar Þór Hauksson og Arnór Vilbergsson.