Danska verðlaunaverkið Enginn hittir einhvern eftir Peter Asmussen verður opnunarsýning í nýju leikrými Norræna Hússins/ Black Box þann 11.mars 2016
Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir Asmussen er sett upp hér á land en hann þykir einn beittasti penni Norðurlanda,
Af þessu tilefni bjóða Norræna Húsið og Annað Svið uppá Master Class þann 12.mars, þar sem listamönnum og almenningi er boðið til fundar við verk Peters Asmussens og það sviðslistafólk sem að að sýningunni stendur.
Markmiðið er að kveikja áhuga á og vitund um það gjöfula samfélag listamanna sem finnst á Norðurlöndum. Skiptast á hugmyndum og reynslu, kynnast vinnuaðferðum og mynda tengsl.
Peter Asmussen hlaut hin virtu Reumert verðlaun sem leikskáld ársins í Danmörku fyrir Enginn hittir einhvern. En hann er líka virtur handritshöfundur og þekkja hann margir sem meðhöfund Lars von Trier að kvikmyndinni Breaking the Waves.
Úr umsögn Reumert
nefndarinnar:
„Enginn
hittir engan er kraftmikið, innblásið og afgerandi leikverk. Peter Asmussen er
listamaður tungumálsins og heldur með okkur í dásamlegt og hættulegt ferðalag
um furður lífsins. Asmussen setur fram sextán stuttar senur sem eru allt í senn
fyndnar, ljóðrænar og ofbeldisfullar og kannar samband karls og konu “
Dagskráin á laugardaginn 12.mars er opin öllum og ókeypis, en listamenn eru beðnir að skrá sig í vinnusmiðjurnar.
10:00 - 12:00 Dans.
Raisa Foster, höfundur
hreyfinga í verkinu leiðir Master Class.
Hún er með doktorsgráðu, lærð í dansi, sjónlist, sviðslist og heimspeki og
hefur í starfi rannsakað og endurskilgreint dans.
12:00 Hádegisverður á tilboðsverði hjá AALTO Bistro
13:00- 14:30 Tónlist.
Andreas Ljones höfundur tónlistar leiðir Master Class þar sem hann segir frá og sýnir hvernig hann hefur farið óhefðbundnar leiðir í tónlistarsköpun sinni. Andreas er algert ólíkindatól. Hann getur tekið uppá því að fara heljarstökk í miðju lagi og á útitónleikum hefur hann jafnvel lagst til sunds. Hann er frjór og skemmtilegur og veitir mikinn innblástur.
Kaffihlé
15:00- 16:30 Leikhús
Mikkel Harder forstjóri
Norræna Hússins leiðir samtal við Simon Boberg og listamenn sýningarinnar um Peter
Asmussen og verk hans. Simon þekkir Peter náið og hefur stýrt mörgum
frumuppfærlum verka hans. Þá verður einnig farið yfir glæsilegan ferill
Asmussen sem handritshöfundar.
16:30 Móttaka. Léttar
veitingar í boði Norræna Hússins
Þá verður sýning á Enginn hittir einhvern á bæði laugardagskvöld og sunnudagskvöld kl 20:30.