Tix.is

Um viðburðinn

Tim Scott McConnell, betur þekktur sem Ledfoot, er besti tónlistarflytjandi sem þú munt nokkurn tíma sjá á sviði. Tónlist hans hefur einstakan hljóm sem samanstendur af tólf strengja gítar, djúpri, dáleiðandi rödd og textum sem fá hárin til að rísa.

Hans stærstu aðdáendur eru Bob Dylan og Bruce Springsteen, sem hefur tvisvar á ferli sínum hljóðritað lag Ledfoots, High Hopes og nefndi síðustu plötuna sína sem var hæst á sölulistum í 15 löndum eftir laginu! Þetta er þitt tækifæri til að sjá hann á sviði áður en tónleikaferðalag hans um Evrópu byrjar.

Lucy In Blue, ung og upprennandi íslensk hljómsveit, mun hita upp. Tvö snilldaratriði á einu kvöldi, eitthvað sem þú vilt ekki missa af!

18 ára aldurstakmark