Tix.is

Um viðburðinn

Gavin James á Café Rosenberg

Írska söngvaskáldið Gavin James gaf út frumraun sína 'Bitter Pill' í heimalandinu síðla ár 2015 og náði platan fljótt platínusölu þar. Í kjölfar velgengni 'Bitter Pill' á heimavelli tryggði hið fornfræga bandaríska útgáfufyrirtæki Capitol Records sér útgáfuréttinn á plötunni í Norður Ameríku og Sony í Evrópu. 'Bitter Pill' kemur út á heimsvísu þann 11. mars n.k. Það eru ekki bara útgáfufyrirtækin sem hafa verið að taka eftir Gavin því bæði Sam Smith og Ed Sheeran leituðu til hans með upphitun á tónleikaferðum sínum um heiminn á síðasta ári. Gavin James kemur einnig fram á Bræðslunni tveimur dögum eftir tónleikana á Café Rosenberg.