Hljómsveitin Amabadama ætlar að halda tónleika næstkomandi laugardagskvöld á Húrra.
Sveitin hefur undanfarið verið undir feld að vinna nýtt efni fyrir næstu plötu og ætlar að leika bæði ný og gömul lög á Húrra.
Hljómsveitin sendir frá sér í vikunni nýtt lag sem heitir AiAiAi og er það fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu. Hljómsveitin undirbýr tónleikahald sumarsins hér heima og einnig sína fyrstu tónleikaferð erlendis en í henni spila þau meðal annars á einni stærstu tónlistarhátíð Bretlandi, Boomtown.
Upphitun er í höndum Lefty Hooks
Hvað er betra en að sleppa sér, dansa og fá útrás eftir atburði síðustu daga.
20 ára aldurstakmark.