Tix.is

Um viðburðinn

Goðsögnin, kántrístjarnan, leikarinn, söngvarinn, lagahöfundurinn og söngvaskáldið Kris Kristofferson er væntanlegur í Hörpu í haust en hann er einn þekktasti núlifandi kántrítónlistarmaður heims. Þetta er hluti af síðustu tónleikaferð hans til Evrópu. Kemur hann fram vopnaður engu nema gítarnum, munnhörpunni og sinni einstöku rödd.

Það þarf varla að kynna Kris, en hann hefur samið ódauðlega lög eins og t.d. Me and Bobby McGee, Sunday Morning Coming Down, Help Me Make It Through The Night, Why Me Lord auk fjölda annara laga. Fyrrum hermaður, þyrluflugmaður, með meistaragráðu í enskum bókmenntum, leikari, tónlistarmaður og söngvaskáld. Kris Kristofferson hefur aldrei setið auðum höndum hann er margverðlaunaður fyrir bæði tónlistina og leiklistina og hefur þrisvar fengið Grammy og Golden Globe verðlaun auk ótal annara veðlauna. Kris Kristofferson var kosinn í Nashville Songwriters' Hall of Fame árið 1977, Songwriters' Hall of Fame 1985 og í Country Music Hall of Fame árið 2004. Árið 2006 hlaut hann verðlaunin Johnny Mercer Award frá Songwriters' Hall of Fame.

Hann hefur spilað með og átt samstarf við ótal aðra listamenn og er hljómsveitin The Highwaymen líklega sú þekktasta. Þar voru með honum þeir Willie Nelson, Waylon Jennings og Johnny Cash. Kris Kristofferson verður áttræður núna í júní og ákvað fyrir stuttu að fara í síðasta tónleikaferðalag sitt um Evrópu og heimsækja aðeins þá staði sem hann langaði að ferðast til. Því má búast við því að hann staldri í nokkra daga hér á landi og njóti lífsins í íslenskri náttúru.

Sérstakir gestir, dóttir hans Kelly Kristofferson og tengdasonur Andrew Hagar. En þau munu hita upp fyrir kappann og spila síðan nokkur lög með honum.