Tix.is

Um viðburðinn

Nú er komið að því að heiðra rokk/metal hljómsveitina System of a Down í annað sinn en sveitina þarf vart að kynna.

S.O.A.D. var stofnuð í Kaliforníu árið 1994 og hefur gefið út 5 plötur en þær hafa selst samtals í yfir 40 milljón eintökum. Hljómsveitin hefur vakið athygli fyrir pólitíska ádeilu í textum sínum og áhrif frá Armenskri þjóðlagahefð en þeir eiga allir rætur að rekja til Armeníu.

Tónleikarnir verða haldnir á Gauknum föstudagskvöldið 2. september. Síðast komust mun færri að en vildu og því er ráðlegt að tryggja sér miða í tíma.

Heiðurssveitina skipa:
Stefán Jakobsson - Söngur
Finnbogi Örn Einarsson - Söngur
Hrafnkell Brimar Hallmundsson - Gítar
Þórður Gunnar Þorvaldsson - Gítar/hljómborð/söngur
Erla Stefánsdóttir - Bassi/söngur
Sverrir Páll Snorrason - Trommur

20 ára aldurstakmark