Átakamikið verk eftir Ingmar Bergman
DRAUMUR UM EILÍFA ÁST
Jóhann og Maríanna hafa verið gift í tíu ár. Þeim gengur vel, hafa náð langt í starfi, eiga tvö börn og hjónaband þeirra virðist endalaus hamingja. Þangað til Jóhann tilkynnir Maríönnu að hann vilji skilja. Við tekur hressandi kvöldstund þar sem allt?er gert upp: Hjónabandið, sambandið, vináttan, kynlífið, draumarnir, gleðin, sorgin, vonin?og frelsið - og öll uppáhaldslögin.
Verkið byggir á tíu þátta sjónvarpsseríu Ingmars Bergman sem sýnd var í sænska sjónvarpinu árið 1973 við svo miklar vinsældir að götur Svíþjóðar tæmdust.?Síðar voru þættirnir sýndir um allan heim. Leiksviðsútfærslan var frumsýnd í leikstjórn höfundar árið 1981 í München og hefur síðan verið sýnd í fjölda leikhúsa um allan heim.
Höfundur: Ingmar Bergman Þýðing: Þórdís Gísladóttir
Leikstjórn: Ólafur Egill Egilsson?
Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir Lýsing: Kjartan Þórisson?
Tónlist: Barði Jóhannsson?
Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir?Hljóð: Baldvin Þór Magnússon
Leikarar: Björn Thors, Unnur Ösp Stefánsdóttir