Tix.is

Um viðburðinn

Baggalútur blæs til sinna alkunnu og rómuðu jólatónleika í ellefta sinn. Enn eina ferðina í Háskólabíói við Hagatorg, sem er annað heimili Baggalúts í desember. Sveitin leikur og syngur öll lögin sem þú þráir að heyra til að koma þér í jólagírinn og fyllir þig hinum eina sanna jólaanda.

Að vanda mun sérsveit Baggalúts tjalda öllu til; lúðrar verða þeyttir, bumbur barðar, gígjur og slaghörpur slegnar og raddbönd þanin.

Góða skemmtun og gleðilegan Baggalút.