Tix.is

Um viðburðinn

Eddie Izzard hefur ferðast um allan heiminn og átt ótrúlegu fylgi að fagna! FORCE MAJEURE er umfangsmesti uppistandstúr sem um getur en Eddie hefur flutt efni sitt á þremur tungumálum og komið fram í fleiri en 28 löndum!

Eddie er maðurinn sem gerði bull og vitleysu að listformi. Hann var fyrstur allra til að flytja uppistand einn síns liðs á hinum sögufræga stað í Los Angeles; Hollywood Bowl. Hann er þekktur úr hinum ýmsu kvikmyndum og þáttaröðum og auk þess hefur hann komið fram á Madison Square Garden, West End í London og fjölda annarra frábærra staða - og nú heimsækir hann Hörpu í annað sinn!

Ísland er eitt örfárra Evrópulanda sem hlotnast sá heiður að fá þennan bráðfyndna uppistandara til að flytja FORCE MAJEURE: RELOADED!