Tix.is

Um viðburðinn

Sjöttu Eyjatónleikarnir í Eldborgarsal Hörpu - og alltaf uppselt

Enn á ný flykkjast Eyjamenn og vinir þeirra í Eldborgarsal Hörpu á eitt glæsilegasta árgangs- og ættarmót í Evrópu. Þótt gaman sé að hitta alla gömlu vinina og ættingjana þá komum við þarna saman fyrst og fremst til að njóta þessa mikla og dýrmæta menningararfs sem Eyjatónlistin er.

Tónlist sem hefur að langmestu leiti orðið til í kringum hið magnaða meistaraverk sem er Þjóðhátíð í Herjólfsdal. Það er þess vegna sem Þjóðhátíðarlögin skipa svona stóran sess í tónleikununum á hverju ári. Þau eru svo mörg og þau kalla fram svo yndislegar minningar. En við munum að sjálfsögðu koma víðar við, enda af nógu að taka.

Ekki láta þig vanta á þetta einstaka kvöld í Hörpu. Vertu með okkur, rifjaðu upp með okkur gamlar og góðar gæðastundir og gleymum okkur saman í söng og gleði. Já, „melódíur minninganna“ – það er bara varla til nokkuð betra.

Einvalalið söngvara kemur fram:
Páll Rósinkranz
Ragnar Bjarnason
Stefanía Svavarsdóttir
Eyþór Ingi
Einar Ágúst
Sara Renee Griffin
Elín Harpa Héðinsdóttir
Kristján Gíslason
Alma Rut
Karlakór Vestmannaeyja

Ásamt stórhljómsveit undir stjórn Þóris Úlfarssonar:

Eiður Arnarsson
Birgir Nielsen
Kjartan Valdemarsson
Jón Elvar Hafsteinsson
Ari Bragi Kárason
Sigurður Flosason