Tix.is

Um viðburðinn

Það er löngu kominn tími á Mugison tónleika á landinu. Nú hefur kappinn klárað nýja plötu, þá fyrstu síðan metsöluplatan Haglél kom út árið 2011. Mugison hefur spilað mjög lítið hér heima síðan þá og þess vegna mjög spennandi að sjá og heyra nýju og gömlu lögin.

Þessir tónleikar verða hinir eiginlegu útgáfutónleikar.

Hann hefur lofað geggjuðum tónleikum þar sem öllu verður til tjaldað, fallegu lögin verða enn fallegri og grófu lögin negld niður einsog það sé stormur í aðsigi. Geggjuð tónlist flutt af ástríðu og einlægni sem Mugison er þekktur fyrir.

Mugison ætlar að gefa öllum tónleikagestum nýja diskinn með í kaupbæti. Ekki missa af þessum frábæru tónleikum.

25. nóv - Edinborgarhúsið, Ísafirði
2. des - Bíóhöllin, Akranesi
3. des - Hljómahöll
9. des - Græni hatturinn, Akureyri
10. des - Valaskjálf, Egilsstöðum