Tix.is

Um viðburðinn

Lúðrasveit Reykjavíkur er elsta lúðrasveit landsins, en hún var stofnuð 7. júlí 1922 við sameiningu lúðrafélaganna Gígju og Hörpu. Þá þegar hafði Harpan hafið undirbúning að byggingu æfinga- og tónleikahúss í nánu samstarfi við Knud Ziemsen bæjarstjóra Reykjavíkur. Hann hafði bent þeim á að byggja á öskuhaugunum sem blöstu við honum út um skrifstofugluggann. Hljómskálinn var reistur á haugunum við Tjörnina og kostaði fullbúinn kr. 26.415,51.

Á efnisskrá kvöldsins eru eingöngu tónverk eftir núverandi og fyrrverandi meðlimi sveitarinnar. Frumflutt verða verk eftir Unni Malín Sigurðardóttur og Þóri Hermann Óskarsson, en að auki verða flutt eldri verk eftir Daníel Þröst Sigurðsson, Lárus Halldór Grímsson, Báru Sigurjónsdóttur, Árna Björnsson og Pál Pampichler Pálsson. Einleikarar á klarinett eru Kristján Rúnarsson og Thekla Stokstad.

Margir góðir menn hafa stjórnað sveitinni, sá fyrsti var Otto Böttcher, síðar hafa m.a. stjórnað sveitinni til lengri eða skemmri tíma, Páll Ísólfsson, Karl Ottó Runólfsson,Albert Klahn, Páll Pampichler Pálsson, Björn R Einarsson, Stefán Þ Stephensen, Eiríkur Stephensen, Oddur Björnsson, Guðmundur Norðdahl, Helgi Þ Svavarsson, Jóhann T Ingólfsson o.fl. Núverandi stjórnandi er Lárus Halldór Grímsson og hefur hann stjórnað sveitinni frá 1998.

Of langt mál er að telja upp það sem sveitin hefur afrekað á þessum 95 árum sem eru frá stofnun hennar, en þess má þó geta að sveitin hefur gefið út 5 hljómplötur og diska. Fyrsta platan kom út 1968, var það lítil 45 snúninga plata og á henni lék sveitin m.a. þjóðsönginn. Tvær þær næstu voru 12 laga og voru gefnar út af Svavari Gests og komu þær út 1972 og 1975, en bæði þau ár fór sveitin á Íslendingaslóðir í Kanada. Sú fjórða var tekin upp á 80 ára afmælistónleikum sveitarinnar árið 2002. Fimmta platan kom svo út fyrir jólin 2007 og inniheldur valin verk frá vetrinum 2006-2007.

Miðaverð er 2.500 krónur, frítt fyrir börn 16 ára og yngri. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20.00.

Ekki láta þessa tónleika fram hjá ykkur fara.

Góða skemmtun.