Tix.is

Um viðburðinn

Það er komið að því! Laugardaginn 8. apríl verður í fyrsta skipti haldið roller derby mót á Íslandi!

Liðin Suffolk Roller Derby og Team Unicorn koma frá Bretlandi og munu keppa á móti íslenska liðinu Ragnarökum og hvoru öðru á þriggja liða mótinu Þríhöfða sem fer fram í Hertz höllinni, Seltjarnarnes. Tímaplanið fyrir leikina verður:

13:30 - Ragnarök vs. Team Unicorn
15:45 - Ragnarök vs. Suffolk Roller Derby
18:00 - Team Unicorn vs. Suffolk Roller Derby

Roller derby eða hjólaskautaat er hröð og spennandi snertiíþrótt sem fer fram á hjólaskautum. Íþróttin er nokkuð ný af nálinni á Íslandi en Hjólaskautafélagið var stofnað undir roller derby á Íslandi árið 2011. Hjólin fóru að rúlla fyrir alvöru árið 2014 þegar ferðaliðið Ragnarök fór í sína fyrstu keppnisferð og hafa nú verið haldnir átta heimaleikir hér á landi á móti erlendum liðum.

Styðjum við stelpurnar í Ragnarökum og fjölmennum í Hertz höllina þann áttunda!

Frítt fyrir 12 ára og yngri