Tix.is

Um viðburðinn

Rachel Lark er ung og upprennandi söngkona, lagahöfundur og hljóðfæraleikari frá San Francisco. Hún hefur á stuttum tíma fyllt “sex-positive” byltinguna andagift með tónlist sinni og á sér dyggan aðdáendahóp í Englandi og Bandaríkjunum.

Textar söngkonunnar eru kómískir og beittir og lögin hennar eins ólík og þau eru mörg. Hvort sem hún plokki rólega á ukulele eða búi til kröftuga dans-takta á tölvunni sinni er niðurstaðan alltaf bráðskemmtileg og fyndin tónlistarsýning.

Uppistandararnir Snjólaug Lúðvíksdóttir og Bylgja Babýlons hita upp.