Tix.is

Um viðburðinn

Ísafjörður er staðurinn til að vera á um páskana. Þá fer tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fram í bænum ásamt fjölda annarra viðburða fyrir jafnt unga sem aldna. 

Skemmtistaðurinn Krúsin hefur verið starfræktur frá árinu 1987 og er elsti og jafnframt þekktasti skemmtistaður Ísfirðinga. Um páskahelgina er löng hefð fyrir því að slegið sé upp mikilli veislu í Krúsinni og verður engin breyting á því þetta árið. 

Þetta árið er boðið upp á sannkallað stjörnu „line-up“ því Gísli Pálmi, Gus Gus og Skítamórall koma fram á staðnum frá föstudegi til sunnudags. Hægt er að kaupa armband sem gildir á alla þrjá viðburðina en einnig miða á stök kvöld.

Verð:

Gísli Pálmi: Forsala 1.500, hurð 1.800 
Gus Gus: Forsala 3.500, hurð 3.900
Skítamórall: Forsala 3.000, hurð 3.500

Armband á alla þrjá dagana: 6.500